Sæl, öllsömul!
Á sunnudag verður leikinn æfingaleikur við B-lið Hauka. Um sterkt B-lið er að ræða og eru allir iðkendur 3. flokks boðaðir. Leikur þessi hefst kl. 15:30 (ekki kl. 16 eins og upphaflega var ráðgert) og fer fram að Ásvöllum í Hafnarfirði.
Drengir þurfa að vera mættir kl. 14:45 á Ásvelli, fullbúnir til leiks. Keppnisskyrtur verða afhentar eftir atvikum.Â
Á æfingunni á morgun, laugardag, verður svo farið yfir helstu áherslur leiks.
Einhver forföll eru fyrirsjáanleg en iðkendur eru hvattir til þess að tilkynna um allt slíkt.
Birgir Jónasson þjálfari.