Hér með boðar stjórn knattspyrnudeildar Álftaness til fundar með foreldrum/forráðamönnum drengja í 4. aldursflokki á fimmtudag, 28. ágúst, kl. 21. Um ræðir sameiginlegan fund með foreldrum/forráðamönnum drengja á yngra ári í 5. aldursflokki.
Fundarefni er fyrirkomulag komandi þjálfunartímabils. Fundarstaður er félagsaðstaðan í íþróttahúsinu.
Fyrir hönd stjórnar knattspyrnudeildar, Birgir Jónasson, yfirþjálfari yngri flokka.
þetta er orðið endalega ákveðið við förum á 17 manna bíll og verður lagt af stað kl 2 á morgun frá íþróttahúsinu helst að vera mætir 13:45. það er 2000 á mann og endilega að hafa með sér aukapening eða nesti því við stopum einhverstaðar á leiðini.