Æfingaleikur á mánudag
Á mánudag, kl. 15, er ráðgert að leika æfingaleik við eitt af liðum Breiðabliks (líklega blöndu leikmanna úr liðum A2 og B1). Leikin verður sjö manna knattspyrna og verður leikið á Álftanesi. Er umræddur leikur liður í undirbúningi okkar fyrir síðari hluta Íslandsmóts sem ráðgert er að fari fram 16. ágúst nk. (enn ekki vitað hvar).
Allar stúlkur eru boðaðar í leikinn og þurfa þær að mæta eigi síðar en kl. 14:15 í íþróttahúsið, því sem næst fullbúnar til leiks. Í því felst að stúlkur mæti fullklæddar, vel hvíldar og nærðar til leiks.
Birgir þjálfari.