Æfing í dag eða ekki æfing í dag

Sæl, öllsömul!

Þar sem veður er slæmt um þessar mundir og veðurspá að sama skapi slæm er ekki víst að æfing muni verða í dag, þriðjudag. Eins og staðan er núna verður hins vegar æfing en það getur breyst. 

Verði breyting á verður gefin út tilkynning hér á heimasíðunni eigi síðar en kl. 16:15 í dag. Að öðrum kosti er ekki talin sérstök þörf á tilkynningu. Stúlkur eru því beðnar um að fylgjast með.

Birgir þjálfari.