Sæl, öllsömul!
Á föstudag, 9. nóvember, kl. 16:30 verður æfingaleikur hjá 4. flokki stúlkna þar sem att verður kappi við Gróttu. Leikin verður sjö manna knattspyrna og mun leikurinn fara fram á Gróttuvelli.
Allar stúlkur flokksins eru boðaðar auk Heklu og Sylvíu í 5. flokki.
Stúlkur þurfa að vera mættar á leikstað, fullbúnar til leiks, ca hálfri klukkustund fyrir leik eða um kl. 16.
Fólk er hvatt til þess að skipuleggja sig innbyrðis svo tryggja megi að allar stúlkur komist á áfangastað. Best væri ef unnt væri að leggja af stað frá íþróttahúsinu á Álftanesi um kl. 15:40.
Birgir og Guðbjörn þjálfarar.