Vetrarfrí

Sæl öll,


Það verður gefið frí frá öllum æfingu í næstu viku hjá öllum flokkum UMFÁ. Því erum við komin í vetrarfrí, hinsvegar stendur það til boða að iðkendur mæti í íþróttahúsið þar sem Guðbjörn Harðarson verður með umsjón yfir salnum frá 11:00 - 12:30 og geta strákarnir mætt á þeim tíma alla næstu viku.




Kv, Örn

Keflavíkurmótið 23. febrúar staðfesting

Sæl öll,


Við erum skráð á mót núna sunnudaginn 23. febrúar og þar sem þetta er í vetrarfríinu og einhverjir verða úti á landi þá verð ég að fá staðfestingu sem ALLRA fyrst, því ef ég hef ekki næga þátttöku þá verð ég að skrá okkur úr þessu móti. Látið vita helst ekki seinna en á mánudaginn hvort þið ætlið að koma, LÁTIÐ LÍKA VITA EF ÞIÐ ÆTLIÐ EKKI AÐ KOMA.




Kv, Þjálfarar

Æfingin í dag fellur niður 12/2

Sæl öll,

Æfingin í dag fellur niður vegna veikinda og annarra ástæðum hjá þjálfurum. Næsta æfing er því á föstudaginn

Afsakið þetta.

Kv, þjálfarar

Tækniæfing fellur niður

Sæl, öllsömul!

Sparkvöllurinn á Álftanesi er snævi þakinn og aðstæður til tækniæfinga ómögulegar. Af þeim sökum fellur tækniæfing niður í dag.

Birgir tækniþjálfari.