Tækniæfingar - breyttur æfingatími

Sæl, öllsömul!

Frá og með fimmtudeginum 30. janúar verða tækniæfingar á fimmtudögum frá kl. 18:30 til 19.  

Birgir Jónasson tækniþjálfari.

Æfingin á morgun fellur niður.

Sæl öll,

Æfingin á morgun (föstudag) fellur niður vegna undirbúnings fyrir þorrablótsins sem er um helgina.

Kv, þjálfarar

Fundur á fimmtudaginn

Sæl öll,

Ég ætla að minna ykkur á fundinn sem frestaðist í síðustu viku. Fundurinn er núna á fimmtudaginn 23. janúar, farið verður yfir mót sumarsins og þá helst hvernig við ætlum að fjármagna þau. Fundurinn hefst stundvíslega kl 20:00 og verður hann í félagsaðstöðu íþróttahússins. Mikilvægt er að sem flestir mæti á þennan fund!

Kv, Þjálfarar

Fundur frestast!

Sæl öll,



Foreldrafundurinn sem átti að vera núna á fimmtudaginn seinkar þangað til í næstu viku vegna mikilla anna hjá mér og því miður verð ég að færa þennan fund þangað til í næstu viku. Verður fundurinn á fimmtudaginn 23. janúar á sama tíma kl 20:00 í íþróttahúsinu.



Afsakið þetta.



kv, Örn Ottesen