Æfingar fyrir unglinga á þriðjudögum kl. 20:00

Golfklúbbur Álftaness ætlar að fara af stað með æfingar fyrir unglinga, 12 - 17 ára. Victor Viktorsson, PGA golfkennaranemi, mun sjá um þessar æfingar og munu þær vera á  þriðjudögum kl. 20:00. 

Golfklúbbur Álftaness ætlar að fara af stað með æfingar fyrir unglinga, 12 - 17 ára. Victor Viktorsson, PGA golfkennaranemi, mun sjá um þessar æfingar og munu þær hefjast þriðjudaginn 18. júní kl. 20:00. Áhugasamir eru beðnir um að staðfesta þátttöku með því að senda póst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Æfingar verða einu sinni í viku út sumarið. Gert er ráð fyrir að meðlimir í golfklúbbnum greiði æfingagjöld, 7.000.- kr. en þeir sem eru ekki meðlimir í golfklúbbnum þurfa einnig að greiða félagsgjald sem er 4.900.- kr. fyrir 16 ára og yngri. Félagsgjald fyrir 17 - 19 ára er 12.000.- kr. 

Við viljum einnig benda á að þeir sem hafa áhuga á að fá kennslu í golfi, hvort sem það er einkakennsla eða 4 - 5 saman í hóp, þá er hægt að setja sig í samband við Victor Viktorsson (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., 892-9555 ), PGA golfkennaranema.