Nú er komið að 3.umferðinni hjá strákunum í körfuboltanum. Hún fer fram núna um helgina í Seljaskóla í Breiðholti.
Fyrsti leikur hjá okkur á laugardaginn 8. feb byrjar kl: 13.00. Vil ég biðja ykkur að vera mætt í Seljaskóla kl: 12.30. Seinni leikur laugardagsins hefst svo kl: 15.00.
Á sunnudaginn hefjum við leik kl: 9.00 og þarf þá að mæta kl: 8.30 í Seljaskóla. Við spilum svo síðasta leik okkar kl: 11.00 á sunnudaginn. Þjálfararnir koma með búninga og strákarnir með skó, nesti, vatnsbrúsa og góða skapið. Við viljum auðvitað hafa alla sem hafa verið á æfa með í þessu móti. Þið eigið að láta mig vita ef þið komist ekki eða þurfið að fara fyrr.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar í síma 8631502 eða á póstfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Á laugardaginn 11. jan erum við að fara að taka þátt í körfuboltamóti í Haukahöllinni í Hafnarfirði. Við verðum með tvö lið eins og í jólamóti ÍR á síðasta ári og verða liðin næstum eins skipuð. Keppnisgjaldið er 2500 kr og tekur þjálfari við því á leikstað.
Eldra-liðið hefur leik kl: 9.00 á laugardagsmorgun og eiga allir að vera mættir í Haukahöllina ekki seinna en kl: 8.40. Eldra-liðið sem heitir Álftanes 2 á leikjaplaninu er skipað: Andrés, Bjarni, Ísar, Baldur, Kristján og Valur. Síðasti leikur þeirra á að vera búinn um kl:12.30. Börnin fá búninga hjá okkur en nauðsynlegt er að hafa með hollt og gott nesti.
Yngra-liðið hefur leik kl: 14.30 á laugardag og eiga að vera mætt í Haukahöllina ekki seinna en kl: 14.10. Yngra-liðið sem heitir Álftanes 1 á leikjaplaninu er skipað: Vaka, Ævar, Aron, Elvar, (Gabríel og Bjarki ). Síðasti leikur þeirra á að vera búinn um kl: 17.30. Börnin fá búninga hjá okkur en nauðsynlegt er að hafa með hollt og gott nesti.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 8631502.
Okkur stendur til boða að taka þátt í Actavismóti Hauka í Hafnarfirði helgina 11. og 12. janúar. Krakkarnir okkar keppa bara annan daginn og er það nokkuð örugglega laugardaginn 11.jan.
Leikið er með fjóra leikmenn inná í einu í 2 x 12 mín. Þátttökugjald er 2500 krónur og ekki talin stig heldur bara æfingamót eins og jólamót ÍR um daginn.
Vinsamlegast skrifið í athugasemd hér að neðan ef barnið ykkar tekur þátt svo við vitum hvað við höfum marga iðkendur.