2 Guys mót Álftanes fyrir 3 og 4 bekk

Hið árlega Opna mót okkar Álftnesinga fyrir yngri iðkendur 8-9 ára, var haldið um síðustu helgi í samvinnu við meistarana í 2GUYS.

Um 300 krakkar komu í heimsókn og spiluðu körfubolta af krafti í yfir 15 klst. Frítt var í sund fyrir keppendur og foreldra þeirra og fengu allir verðlaunapening og gjafabréf á 2GUYS fyrir þátttökuna. Sjálfboðaliðar UMFÁ sýndu enn og sönnuðu að ungmennafélagsandinn svífur svo sannarlega yfir vötnum á Álftanesinu, en án þeirra væri auðvitað ekki hægt að halda svona viðburð, og þökkum við þeim kærlega fyrir sína vinnu alla helgina.

Það er svo skammt stórra högga á milli, því í lok mánaðarins munum við ásamt Valsmönnum, halda fjölliðamót/umferð í Íslandsmótinu í 8. flokki. Nánar um það síðar…