Æfingar í þessari og næstu viku

Sæl, öllsömul!

Æfingar í þessari og næstu viku verða á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum frá kl. 17:45 til 19. Æfingar munu fara fram á grasvellinum á Álftanesi. 

Athygli er vakin á því að tækniæfingar á fimmtudögum hafa runnið sitt skeið á enda í bili.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.  

Æfingar og fundur

Sæl, öllsömul!

Engin æfing er í dag, mánudag, en æfingin á morgun, þriðjudag, verður frá kl. 17. 

Þá er athygli vakin á því að fundurinn á morgun verður að öllum líkindum ekki, heldur mun hann frestast til mánudagsins 27. maí nk. 

Birgir og Guðbjörn þjálfarar. 

Fundur vegna Danmerkurferðar

Sæl, öllsömul!

Hér með er boðað til fundar með foreldrum/forráðamönnum og iðkendum vegna Danmerkurferðar á þriðjudag, 21. maí nk., kl. 20. Fundarstaður er grunnskólinn á Álftanesi.

Á fundinum mun fulltrúi ÍT ferða koma og kynna alþjóðlega knattspyrnumótið Dana Cup og svara öllum spurningum varðandi það. Reikna má með að fundartími geti orðið allt að ein klukkustund. 

Birgir og Guðbjörn þjálfarar. 

Tækniæfing í dag fellur niður

Sæl, öllsömul!

Það athugast að tækniæfing fellur niður í dag, uppstigningardag.

Birgir Jónasson tækniþjálfari.