Hæ Stelpur,
Það er mæting niðri í íþróttahúsi kl 14:00 í dag til að fá hverfi og blöð til að bera út, endilega hvetja allar stelpur til að mæta þá tekur þetta ekki langan tíma. eldra ár ætti að geta byrjað að bera út strax kl 14:00 og klárað sitt fyrir afmæli og Jólaball og yngra árið getur læika byrjað strax kl 14:00 og klárað síðan eftir Jólaball.
Margar hendur vinna léttverk, mætum allar og klárum þetta á núll einni ;o)
Áfram Álftanes!!
f.h Foreldraráðs
Ármann (pabbi Sölku)
Jólafrí
Sæl, öllsömul!
Frí verður frá æfingum um jól og áramót. Nánar tiltekið er síðasta æfing fyrir jól miðvikudaginn 19. desember (morgunæfing en ekki verður æfing í Garðabæ um kvöldið vegna jóladansleiks). Æfingar hefjast svo á ný mánudaginn 7. janúar nk.
Mögulegt er að boðið verði upp á tíma í íþróttahúsi milli jóla og nýárs en það verður auglýst sérstaklega, ef af verður. Iðkendur eru hvattir til að fylgjast með því sérstaklega inni á heimasíðunni.
Með jóla- og nýárskveðjum,
Birgir og Guðbjörn þjálfarar.
Tækniæfing á fimmtudag kl. 17:30 og fjáröflun
Sæl, öllsömul!
Það athugast að tækniæfing á fimmtudag er kl. 17:30 í stað 18:30. Um sameiginlega æfingu með 5. flokki stúlkna verður að ræða. Í framhaldi er svo ráðgert að stúlkur gangi í hús í fjáröflunarskyni eins og kunngert hefur verið.
Þá athugast það að stúlkur munu fá afhenta miða að lokinni æfingu í Garðabæ á morgun, miðvikudag. Af þeim sökum er brýnt að sem flestar stúlkur mæti.
Birgir Jónasson þjálfari.