Sæl, öllsömul!
Dósasöfnun í fjáröflunarskyni verður hjá 4. flokki stúlkna þriðjudaginn 12. mars nk. Um hefðbundna söfnun verður að ræða sem hefst kl. 18 við áhaldahúsið á Álftanesi.
Miðar um söfnunina munu verða afhentir stúlkum á morgun, föstudag, sem og upplýsingar um hverfaskiptingu. Miðana þurfa stúlkur svo að bera út í hús eigi síðar en á mánudagskvöld. Mun Guðbjörn Harðarson annast það að afhenda stúlkum miða.
Við söfnun er gert ráð fyrir að foreldrar/forráðamenn útvegi kerrur og/eða stórar bifreiðar til þess að flytja dósir, venju samkvæmt.
Birgir og Guðbjörn þjálfarar.