Hraðmót á sunnudag

Sæl, öllsömul!

Fyrir liggur að búið er að fresta Íslandsmóti í Futsal innanhússknattspyrnu um eina viku. Hins vegar eru sömu stúlkur og boðaðar voru í Futsal hér með boðaðar í hraðmót HK á sunnudag, 3. febrúar. Mótið hefst kl. 12 og stendur til kl. 15. Mótsgjald er 1.500 krónur fyrir hvern iðkanda.

Stúlkur þurfa að vera mættar kl. 11:30 í Kórinn í Kópavogi en þar fer umrætt mót fram.

Öll forföll ber að tilkynna.   

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.  

Liðskipan í Futsal sunnudaginn 3. feb

Sæl, öllsömul!

Liðsskipan í Íslandsmóti í Futsal innanhússknattspyrnu sem fram fer á sunnudaginn, 03. febrúar,sem fer fram í Íþróttamiðstöð Gravogs verður eftirfarandi:

Birta
Eva Maren
Freyja
Guðný (m)
Hekla
Katrín
Selma
sylvía
Veronika


Gott væri að hver og ein kæmi með sinn vatnsbrúsa.

þegar þetta er skrifað er ekki komin tímasetning á mótið en læt hana inn um leið og hún kemur.

Kv Birgir og Guðbjörn þjálfarar.

FH - Álftanes - stutt umfjöllun

Sæl, öllsömul!

Ég ætla að fara örfáum orðum um æfingaleikina við FH sem fram fóru í dag, miðvikudag. Leikir þessir fóru fram á í Risanum í Hafnarfirði. Leikið var hjá A- og B-liðum og var fyrirkomulag á þá lund að leikið var í sex manna liðum, þ. e. fimm útileikmenn og markvörður, en leikvöllurinn var hálfur völlur í Risanum.

Hjá A-liðum var um hörkuleik að ræða þar sem jafnræði var með liðum en FH liðið þó ívið sókndjarfara, einkum framan af. FH komst til að mynda yfir, 1-0, en þá var eins og okkar stúlkur vöknuðu til lífsins og gerðu þrjú mörk en staðan í leikhléi var 1-3, Álftanesi í vil. Í síðari hálfleik náðu FH stúlkur að jafna metin en þá komu þrjú mörk frá okkar stúlkum áður en FH náði að minnka muninn. Lyktir urðu því 4-6, Álftanesi í vil, sem verða að teljast góð úrslit. Mörk Álftaness gerðu: Katrín 2, Sylvía 2, Eva 1 og Selma 1.

Hjá B-liðum var mjög á brattann að sækja gegn sterku liði FH. Okkar stúlkur héldu hins vegar áfram þar til yfir lauk og gáfust ekki upp. Þær náðu ekki að skora í leiknum en áttu nokkrar ágætis tilraunir. Allar fengu að spila og voru ánægðar í leikslok. Það er fyrir mestu.

Heilt yfir var ég sáttur við frammistöðu beggja liða. 

Birgir þjálfari.

Æfingaleikir hjá 5. flokki stúlkna á morgun, miðvikudag

Sæl, öllsömul!  

Athygli er hér vakin á því að á morgun, miðvikudag, 23. janúar, frá kl. 16-17, er ráðgert að leika æfingaleiki við FH. Munu leikir þessir fara fram inni í Risa í Kaplakrika í Hafnafirði. Leikið verður í A- og B-liðum en fyrirkomulag verður þannig að leikið verður í sex manna liðum.    

Báðir leikir eru á sama tíma og þurfa stúlkur að mæta í Risann ca 25 mínútum fyrir leik, fullbúnar til leiks og með vatnsbrúsa. Liðsskipan verður ákveðin á staðnum en reikna má með sambærilegri uppstillingu og í síðasta leik.

Öll forföll eiga að tilkynnast.    

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.