Augnablik - Álftanes, stutt umfjöllun

Sælar, stúlkur. 

Stutt endurgjöf vegna leiksins á föstudag. 

Heilt yfir er mjög ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir afleita byrjun bæði í fyrri og síðari hálfleik. Sýndum frábæran karakter liðs og vilja til þess að vinna leikinn. Að mínu mati breytti annað mark okkar miklu en um frábært mark var að ræða, ein sending inn fyrir, leikið á markvörð og mark. Finnst eins og það hafi sýnt okkur hvað þetta er „einfalt“. 

Það var fjölbreytni í mörkum okkar (Oddný 3 og Erna 1) og mark eins og í því þriðja hefur verið sjaldséð hjá okkur, þ.e. þar sem markvörður var pressaður. Sýndi viljann.

Frábært að sjá stúlkur koma inn á með mikinn vilja og þarna kom í ljós í hið klassíska, það kemur maður í manns stað.

Byggjum á þessu og höldum áfram að bæta leik okkar. Stíf dagskrá framundan og við þurfum vera dugleg að æfa og reyna bæta leik okkar enn frekar.

Loks vil ég taka fram að grasvöllurinn verður ekki tilbúinn til keppni á þriðjudaginn kemur. Af þeim ástæðum munum við æfa á gervigrasinu í dag og á morgun þar sem næsti leikur fer fram þar.

Birgir Jónasson þjálfari.