Lokahóf yngri flokka Álftaness í körfubolta var haldið í íþróttahúsinu síðasta mánudag.  

Að venju var þetta skemmtilegt sumargrillpartý þar sem allir kepptust við að skemmta sér sem best og kveðja frábæran körfuboltavetur.
Strákarnir í MB11 fengu viðurkenningu fyrir Íslandsmeistarartitilinn og stiklað var á stóru í starfi vetrarins.  
Metfjöldi iðkenda æfði körfubolta síðasta vetur en um 120 krakkar voru skráðir, á aldrinum 4-19 ára. Strákarnir í meistaraflokki kíktu í heimsókn og fóru í skotkeppnir og 1á1 við krakkana og vinsælt var að reyna að troða á minniboltakörfu yfir Ragga Nat og vinna sér þannig inn 5000 kall frá honum.
Við þökkum iðkendum, foreldrum og sjálfboðaliðum kærlega fyrir veturinn og hlökkum til að sjá ykkur öll aftur í lok sumars.