Guðjón Máni Brjánsson hefur verið valinn í lokahóp U15 ára landsliðs Íslands, sem fer á Norðurlandamótið í Finnlandi í sumar.
Guðjón Máni er fyrsti unglingalandsliðsmaður okkar Álftnesinga í körfuknattleik og óskum við honum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.
Það eru fáir duglegri að æfa sig en Guðjón Máni og er hann nú að uppskera vel eftir mörg hundruð klst af skot-drippl- og styrktaræfingum, sem hann hefur tekið í íþróttahúsinu síðustu 3-4 ár.
Til gamans má geta, að Sigrún Sól, systir Guðjóns og Álftnesingur, sem spilað hefur með Stjörnunni undanfarin ár, hefur einnig verið valin í U17.
UMFÁ óskar þeim góðs gengis á parketinu í sumar.

