Álftanes komið í undanúrslit Fótbolta.net bikarsins.
Meistaraflokkur karla hjá Álftanesi gerði góða ferð norður í gær er liðið sló 2 deildar lið Dalvík/Reynir úr leik í bikarnum.
Þetta er annað lið úr 2 deildinni sem Álftanes slær út, en fyrr í sumar lögðu strákarnir lið Fjölnis örugglega. Strákarnir spiluðu frábærlega í gær á mót Dalvík/Reyni og sýndu sparihliðarnar.
Dalvík/Reynir byrjuðu betur og komust yfir á 19 mín., en eftir það tókur Álftnesingar öll völd á vellinum, jöfnuðu leikinn með marki á 29 mín. með marki frá Bessa Thor og komust svo yfir rétt fyrir hálfleik með marki frá Stefáni Smára.
Seinni hálfleikur var rétt byrjaður er Arian Ari skoraði á 48 min. og kom liðinu í 3-1. Það var svo Sveinn Sær sem innsiglaði frábæran sigur með tveim mörkum, annað á 88 mín. og það fimmta á 92 mín.
Glæsilegur 1-5 sigur og liðið tryggði sig í undanúrslit. Í undanúrslitum eru komin lið úr 2 deildinni, Haukar með Álftnesinginn Guðjón Lýðsson í fararbroddi, Selfoss og Kormákur/Hvöt. Það verður spennandi að sjá hvaða lið kemur úr hattinum þegar það verður dregið, en undanúrslitin fara fram 20. September.
Liðið hefur verið að spila gríðarlega vel í sumar, eru efstir í 4 deildinni og stefna upp og að vinna 4 deildina. Við hvetjum Álftnesinga til að mæta og styðja liðið í baráttunni, en næsti leikur liðsins er á útivelli á móti Árborg föstudaginn 7 ágúst. Næsti heimaleikur er fimmtudaginn 13 ágúst kl. 19:15 á HTH vellinum.
Áfram Álftanes
