2Guys gefur kkd Álftanes minnibolta

Hjalti í 2Guys kom færandi hendi á æfingu hjá yngstu iðkendum körfuknattleiksdeildar Álftanes og gaf deildinni 30 minni bolta.

Ásamt því að færa deildinni boltana mætti hann á æfingu hjá byrjendahóp körfunnar, 4-5 ára og gaf öllum iðkendum bolta svo þau geti verið dugleg að æfa sig.

Við þökkum Hjalta og 2Guys fyrir frábæra gjöf sem mun nýtast vel á æfingum mb flokka deildarinnar og stuðla að næstu meistaraflokksleikmönnum deildarinnar.

Áfram Álftanes!