Hlaupaárið 2014 hjá Skokkhópi Álftaness

altUndirbúningur fyrir hlaupaárið 2014

Hlaupaárið 2014 er hafið og byrjaði bara vel með góðri veðráttu í janúar og það sem liðið er af febrúar. Mæting í hlaup hefur verið vonum framar strax frá byrjun árs og haldist bara viðunandi, miðað við það að oft hefur verið nokkuð hvasst og kalt á köflum, en klaki og hálka hefur einkennt það sem liðið er af árinu. Nú hefur daginn tekið að lengja verulega, svo það er orðið bjart á meðan æfingum stendur.

 Hlauparáðið hefur komið saman og skipulagt árið með útgáfu Hlaupa- og viðburðadagskrár fyrir árið 2014. Þar eru tiltekin hópamarkmið og önnur áhugaverð hlaup, ásamt því að aðrir viðburðir eins og samskokk, fjallgöngur, grill og haustfagnaður er á dagskránni. Ræddum við líka möguleika á því að skokkhópurinn færi í erlent hlaup á næsta ári “2015”, en ekkert var fest í þeim efnum heldur ákveðið að byggja hópinn betur upp í sumar og ákveða svo í haust hvort af yrði.


Æfingaáætlun: Siggi P. hefur verið fenginn til að setja saman fyrir okkur æfingaáætlun sem verður hópamiðum í 2-3 styrkleikum. Er þetta gert til að allir geti byggt sínar æfingar frá svipuðum grunni, en að sjálfsögðu fer ákefð æfinganna eftir styrk hvers og eins. Allir ættu að geta hafið æfingarnar á sama tíma, en að sjálfsögðu fer lengd æfinga eftir magni og markmiði viðkomandi.

Byrjendanámskeið: Byrjendanámskeið verður haldið í vor á svipuðum tíma og í fyrra (maí-júní) ef næg þátttaka fæst. Höfum við verið í viðræðum við Sigga P. um að taka það að sér því það þótti takast mjög vel í fyrra með mikilli þátttöku og ánægju þátttakenda. Námskeiðið gæti líka hentað þeim sem hafa einhvern grunn fyrir.

Innheimta árgjalds fyrir meðlimi SÁ: Innheimta árgjalds hefur verið ákveðin og er gjaldið kr. 5000 fyrir árið. Skráningu meðlima og greiðslu árgjalds má inna af hendi í gegnum Nóra-greiðslukerfið.

Það er nauðsynlegt að hafa aur á milli handanna til að geta komið á móts við kostnað er fellur til, eins og t.a.m. æfingaáætlanagerð, námskeiðahald, fyrirlestra og uppákomna vegan félagsstarfsins. Einnig er það góð leið til að hafa yfirsýn yfir virka meðlimi hverju sinni. Algengt árgjald hjá skokkhópum landsbyggðarinnar er frá 12-20 þús. Vonum við að hlaupaáhugafólk sýni þessu skilning því markmiðið með gjaldtöku er að styrkja starfið í okkar þágu.

Að hvetja til hlaupa: Við í hlauparáði viljum endilega hvetja alla til þess að auglýsa hlaupahópinn meðal vina og kunningja. Það eru ótrúlega margir sem halda að það að hlaupa sé eitthvað sem þarf mikinn undirbúning fyrir, en það að bjóða fjölskyldu og vinum með sér á æfingu hjá SÁ getur markað kaflaskil hjá fólki til betra lífs.

Allar upplýs um Skokkhóp Álftaness má finna á bloggsíðu skokkhópsins. - http://www.skokkalftanes.blog.is