TILKYNNING

Æfingatafla körfuknattleiksdeildar veturinn 2025-2026

 
Æfingar körfuknattleiksdeildar UMFÁ byrja á mánudaginn 25. ágúst eftir gott sumarfrí.

Að vanda höfum við orð formannsins okkar og hið mikilvæga hlutverk íþrótta, að leiðarljósi, þar sem skemmmtun, samstarf og samvinna okkar allra skiptir höfuðmáli.

Æfingataflan er birt með fyrirvara um breytingar, en reynt hefur verið að koma til móts við sem flesta iðkendur og forðast árekstra við aðrar íþróttir innan félagsins.

Tilskilin fjölda iðkenda þarf auðvitað líka til að halda úti flokki svo við hvetjum alla krakka til að vera dugleg að prófa æfingarnar frítt fyrstu 2 vikurnar.
Þeir sem hafa svo áhuga á æfa í allan vetur þurfa svo að skrá sig á Sportabler fyrir miðjan september og verður hægt að skrá iðkendur í sportabler í byrjun næstu viku.

Flokkunum okkar og iðkendum er að fjölga og því bætast við þjálfarar og erum við heppin með viðbótina þetta árið.
Ívar Ásgrímsson, frkv.stjóri UMFÁ kemur með sína 40+ ára reynslu sem bæði leikmaður og þjálfari, og tekur við 9.-12. flokki drengja. Skarphéðinn Ingason verður honum til aðstoðar þar sem mikið verður að gera hjá þessum 3 flokkum, sem spila einnig sem ÁLFTANES U í 2. deildinni í vetur.
Rakel Margrét Viggósdóttir, deildarstjóri og kennari í Álftanesskóla, hefur einnig áratuga reynslu sem leikmaður og yngriflokkaþjálfari, og mun hún taka við stelpunum í MB10-11 ára. Henni til aðstoðar verður Skarphéðinn Ingason.
Kjartan Atli heldur áfram með MB 10-11 strákana og með þeim æfa 7.-8. flokkur að hluta og eru líka með sér æfingar. Honum til aðstoðar verður títtnefndur Skarphéðinn.
Ragnar Arinbjarnarson, íþróttakennari sér um MB 8-9 ára strákana og Skarphéðinn um MB 8-9 ára stelpurnar. Saman munu þeir félagar svo sjá um MB 6-7 ára krakkana, sem æfa 2x í viku.

Sú nýjung mun einnig verða í vetur að Leikskólahópur, 4-5 ára, verður í boði á laugardagsmorgnum frá kl 9-10.
Þjálfarar verða Ragnar og Skarphéðinn og munu æfingar haldast í hendur við tímasetningar Íþróttaskólans og er reiknað með að fyrsta æfing hjá þessum hópi verði um miðjan mánuðinn.

Framundan er gríðarlega spennandi vetur, sem byrjar auðvitað með Eurobasket í næstu viku.
Meistaraflokkurinn okkar lítur vel út fyrir komandi tímabil og vonandi sjáum við ykkur sem flest að hvetja í stúkunni í vetur og sem flesta iðkendur á gólfinu að æfa okkar frábæru íþrótt.
Kveðja,
Skarphéðinn Ingason
Yfirþjálfari yngri flokka

Áfram Álftanes!

Birt: /08/22/2025
kl:19:01

Smella fyrir stækkun

Skarphéðinn Ingason,
Yfirþjálfari yngri flokka.