Álftanes deildarmeistari í fjórðu deildinni.

Álftanes varð deildarmeistari í 4 deildinni á fimmtudaginn eftir glæsilegan 9-4 sigur á Elliða í lokaleiknum í deildinni á þessu ári.

Liðið hefur spilað gríðarlega vel og hefur unnið alla leiki sína í deildinni fyrir utan og hafa sýnt gríðarlegar framfarir í allt sumar.

Liðið skoraði 90 mörk á tímabilinu og fékk á sig 22, það eru 5 mörk að meðaltali í leik.

Í leiknum spilaði Andri Janusson kveðjuleik sinn fyrir félagið, en þessi mikli Álftnesingur hefur ákveðið að leggja skóna á hillinu eftir að hafa verið með mfl Álftanes frá upphafi, eða í um 20 ár.

Félagið vill þakka Andra fyrir gríðarlega óeigingjarnt starf fyrir félagið öll þessi ár, en þó svo að Andri hafi ákveðið að setja skóna á hillinu verður hann áfram liðsmaður og situr í aðalstjórn félagsins.

Takk fyrir okkur Andri.

En tímabilinu er ekki alveg lokið, á þriðjudaginn nk. Þá spilar lið Álftanes við lið Selfoss í undanúrslitum Fotbolta,net bikarsins og getur, með sigri, tryggt sér úrslitaleik á Laugardalsvellinum.

Við hvetjum Álftnesinga til að gera sér ferð á þriðjudaginn austur á Selfoss og hvetja strákana áfram.

Áfram Álftanes