Kæru íbúar Álftanesi!

Það er mikill uppgangur og gleði í körfuboltanum á Álftanesi. Á örfáum árum hefur iðkendum fjölgað mikið og starfið eflst.

Í næstu viku ætlum við að vera með risafjáröflun til að styrkja enn frekar við starfið og bæta umgjörð körfuboltastarfsins á Nesinu.

Stefnt er að því að taka í gagnið nýjar körfur fyrir yngri flokka, LED skjái við völlinn, umbætur á félagsaðstöðunni, fleiri bolta, vesti og æfingabúnað í starfið.

Mánudaginn 4. apríl frá kl 17.00-19.00 munu ungir iðkendur körfuboltans ganga í hús og bjóða nauðsynjavörur til heimilisins, til sölu.

Klósett- og eldhúspappír, hakk, kjúkling, hamborgara og kjötbollur. Við vonum að þið takið vel á móti krökkunum og í stað þess að sækja þessar frábæru vörur í næsta stórmarkað, styrkið við kraftmikið starf körfuknattleiksdeildarinnar á Álftanesi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á mánudaginn.

F.h. Körfuknattleiksdeildar UMFÁ,
Huginn Freyr Þorsteinsson