Fótboltaskóli Álftaness

Aldur:
6 – 14 ára (árg. 2019 – 2012)
Dagsetningar og tími:
Námskeið 1: 9.júní – 13.júní, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Námskeið 2: 16.júní – 20.júní, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr  
Námskeið 3: 23.júní – 27.júní, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Námskeið 4: 30.júní – 4.júlí, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Námskeið 5: 7.júlí – 11.júlí, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Námskeið 6: 4.ágúst – 8.ágúst, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Námskeið 7: 11.ágúst – 15.ágúst, kl. 9:00 – 12:00 Verð: 7500 kr
Skráning fer fram í gegnum Sportabler – 50 % systkinaafsláttur.
Lágmarksþátttaka í hverju námskeiði er 15 börn og fellur námskeið niður ef þeim fjölda er ekki náð.
Dagskrá:
Markmið skólans er að veita öllum þátttakendum tækifæri á að auka færni sína í knattspyrnu sem og efla hreyfi- og félagsþroska almennt. Lögð verður áhersla á fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar sem henta öllum.
Námskeiðið fer fram á gervigrasvellinum og að einhverjum hluta á grasvellinum. Mikilvægt er að þátttakendur klæði sig eftir veðri og hafi meðferðis hollt og gott nesti.
Umsjón:
Adolf Daði Birgisson, leikmaður Stjörnunnar í bestu deildinni. Adolf er uppalinn Álftnesingur og á að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands.
Óli Valur Ómarsson, leikmaður Breiðabliks í bestu deildinni. Óli er uppalinn Álftnesingur og á að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands.
Sveinn Sær Ingólfsson, BSc í íþrótta- og heilsufræði frá Háskóla Reykjavíkur. Sveinn er uppalinn Álftnesingur, knattspyrnuþjálfari hjá Álftanesi og leikmaður meistaraflokks Álftaness.

Birt: /05/27/2025
kl:22:14