Fyrstu Íslandsmeistarar Álftaness í körfubolta!

Strákarnir í flokki 10 ára tryggðu sér Íslandsmeistarartitilinn í dag eftir sigur í æsispennandi úrslitaleik gegn Njarðvík. Um er að ræða fyrsta titil í körfuboltasögu Ungmennafélags Álftaness.
Strákarnir léku virkilega vel yfir allt tímabilið og unnu alls 18 leiki og töpuðu aðeins einum. Lokaleikur tímabilsins gegn Njarðvík var hreint út sagt spennuþrunginn og algjörlega í takt við það sem körfuboltaunnendur hafa séð í úrslitakeppni Bónus-deildanna. Að lokum vann Álftanes 39 – 37, eftir gullkörfu.
Leikurinn var jafn bæði að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu og þurfti því að grípa til þessarar sjaldgæfu reglu í yngri flokkunum, að spila þar til annað liðið skorar.
Njarðvíkingar léku þennan leik frábærlega og sama má segja um hin liðin í A-riðlinum í þessu úrslitamóti. Þegar dagurinn hófst gátu þrjú lið orðið Íslandsmeistarar; Álftanes, Njarðvík og KR. Álftnesingar unnu KR-inga sömuleiðis í dag og voru í góðri stöðu fyrir úrslitaleikinn. En ljóst er að öll liðin í þessum riðli hafa tekið gríðarlegum framförum á leiktíðinni, enda áhugasamir strákar, reynslumiklir þjálfarar og hvetjandi foreldrar í öllum liðum.
Þess má geta að mikil fjölgun er í yngri flokkunum á nesinu, starfið er kröftugt og eru yngstu iðkendurnir í leikskóla og þeir elstu í framhaldsskóla. Þrír árgangar hafa afrekað það á leiktíðinni að komast í A-riðil (efstu deild) í sínum flokki. Því er ljóst að framtíðin er björt á nesinu.
Áfram Álftanes!

Birt: /05/18/2025
kl:21:37