Laugardaginn 11. apríl fór 7. flokkur kvenna á TM mótið í Garðabæ.
Full mæting var á mótið og voru því 3 lið skráð til leiks frá 7 fl stúlkna, Álftanesi.
Öll liðin stóðu sig frábærlega og skemmtu sér vel og voru félaginu til mikils sóma.
Stelpurnar sýndu góða liðsheild og gáfust ekki upp þegar á móti blés. Á mótinu eru ekki skráð úrslit en stelpurnar fengu góða samkeppni og fengu öll lið að upplifa sigra sem ósigra.
Næsta mót flokksins er Vormót Þróttar sem fer fram þann 30. maí n.k.


