Pistill um MB10 ára stúlkur

Um síðustu helgi tóku Álftanes stúlkur (fæddar 2014 og 2015) þátt í fjórðu og síðustu umferð Íslandsmótsins í körfubolta á Ásvöllum í Hafnarfirði. Það voru 14 stelpur sem mættu fyrir hönd Álftaness og skipuðu þær tvö lið. 

Lið Álftanes b skipuðu þær: Dagbjört, Einey, Emelía, Kolfinna, Selma, Sunneva og Tara. Stelpurnar í þessu liði hafa verið að hækka sig í styrkleika röðun í vetur og unnu einmitt riðilinn sinn í mótinu á undan. Að þessu sinni töpuðust leikirnir en miklar framfarir voru í stigaskori og almennri frammistöðu milli leikja.

Álftanes liðið skipuðu svo þær: Ásta, Fanney, Helena, Ingibjörg, Rebekka, Sóley og Viktoría. Stelpurnar spiluðu að þessu sinni í B-riðli og höfðu sett sér það markmið að vinna sig upp í A-riðil. Skemmst er frá því að segja að liðið vann, í öðru mótinu í röð, þrjá af fjórum leikjum. Eftir sigra á móti liðum Vals, Þórs Ak og KR laut liðið í lægra haldi fyrir feikisterku liði Stjörnunnar. 

Hópurinn í heild sinni var félaginu eins og alltaf til mikils sóma í framkomu og jákvæðum keppnisanda. Veturinn hefur í heild sinni verið skemmtilegur og gengið vel. 

Það eru forréttindi að fá að þjálfa svona öflugan og skemmtilegan hóp stúlkna sem sem eru frábærir fulltrúar kvennakörfubolta á Nesinu okkar fagra.

Ragnar Arinbjarnarson þjálfari.

Birt: /05/20/2025
kl:20:47