Leikur í Faxaflóamóti - tilhögun

Sæl, öllsömul!

Staðfest hefur verið að leikurinn í Faxaflóamóti við Grindavík, sem ráðgerður var á morgun, laugardag, mun fara fram. Hefst hann kl. 12 og verður leikið á æfingavelli Stjörnunnar í Garðabæ.

Allir iðkendur flokksins eru boðaðir og þurfa þeir að vera mættir á leikstað kl. 11:15, með allan tiltækan búnað meðferðis. Búningaaðstaða verður til staðar í stúku aðalvallar. Þjálfarar munu svo útdeila keppnisskyrtum eftir þörfum. 

Birgir Jónasson þjálfari.