Það verður fundur á fimmtudaginn 19. febrúar og farið verður yfir fjáröflun fyrir mót sumarsins, fundurinn verður í fundaraðstöðu ungmennafélagsins og hefst hann kl 20:00. Mikilvægt er að allir komi á fundinn svo að allir fái þær upplýsingar sem þarf fyrir fjáraflanirnar.
Það verða ekki fótboltaæfingar í vetrarleyfinu í næstu viku. Það er þá ekki æfing á mánudaginn 9. feb, þriðjudaginn 10. feb og fimmtudaginn 12. feb
Fyrirkomulag í vetrarfríi grunnskólans í næstu viku verður þannig að hefðbundnar æfingar falla niður hjá öllum flokkum (þ. á m. tækniæfing). Hins vegar verður iðkendum 7. til 5. flokks boðið að koma í íþróttasalinn á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Nánar tiltekið verður frjáls tími fyrir iðkendur í 7. og 6. flokki (drengi og stúlkur) frá kl. 13 til 14 og fyrir iðkendur í 5. aldursflokki (drengi og stúlkur) frá kl. 14 til 15. Umsjónarmaður með þessu verður Guðbjörn Harðarson.
Æfingaleikurinn sem við áttum að spila við Leikni á morgun hefur verið frestað þar sem veðurskilyrði verða slæm á morgun og völlurinn á kafi í snjó. Við ætlum að reyna að hafa æfingaleikinn á fimmtudaginn í vikunni. s.s. fimmtudaginn 29. janúar.
Það þarf þá að skrá strákana aftur hvort að þeir komi á fimmtudaginn.