Breyttur æfingatími í dag, föstudag

Sæl, öllsömul!

Æfingin í dag, föstudag, er inni í íþróttahúsi frá kl. 18 til 19.

Vegna kappleiks hjá 3. flokki drengja á morgun, laugardag, er óvíst hvernig æfingatíma verður háttað en leikurinn mun fara fram á æfingavelli Stjörnunnar í Garðabæ. Mun það skýrast síðar í dag og liggja fyrir eigi síðar en á æfingunni í dag.

Birgir Jónasson þjálfari.