Hreinsunardagur - fjáröflun

Sæl öll

Á laugardaginn ætlum við að taka þátt í hreinsunarátaki á Álftanesi og safna fé í sjóðinn okkar í leiðinni.

Mæting er við Íþrótahúsið kl 10:30 og er gert ráð fyrir að þetta taki um 1 og ½ klst.

Okkur hefur verið úthlutað svæðinu í kringum skólann og íþóttahúsið.

Ef veðrið verður þokkalegt ætlum við að grilla pylsur þegar verkinu líkur.

Bæjarfélagið mun greiða ákveðna upphæð fyrir verkið sem deilist á þáttakendur eins og hefur verið í dósasöfnunum,

þ.e. 1 hlutur á barn + 1 hlutur ef foreldri mætir með. Ath. Hver drengur fær samt ekki fleiri en 2 hluti þó fleiri fjölskyldumeðlimir taki þátt.

Við hvetjum foreldra til að mæta því það þarf að hafa nokkra umsjón með þvi að þetta sé vel unnið.

Sjáumst á laugardag

Bestu kveðjur

f.h. foreldraráðs

Hildur Gylfadóttir