Kappleikir helgarinnar, liðsskipan o.fl.

Sæl, öllsömul.

Liðsskipan fyrir kappleiki B-liðs gegn FH á morgun, föstudag, og A-liðs gegn Gróttu/KR á sunnudag, er eftirfarandi:

B-lið:
Anna Magnþóra
Bjartey (M/Ú)
Ella
Embla
Eva María (M/Ú)
Freyja
Fríða (F)
Hera
Indíana
Kara
Nanna
Perla Sól
Salome
Sara (ef hún er leikfær)
Vaka
Valdís Anna

A-lið:
Anna Magnþóra
Berglind (F)
Bjartey (M)
Embla
Freyja
Fríða
Hera R.
Hildur
Indíana
Mist
Nanna
Sara
Silja
Vaka
Valdís Eva
Vera

Leikur B-liðs er á Bessastaðavelli og hefst kl. 19. Mæting er í vallarhúsið kl. 18.

Leikur A-liðs verður á Gróttuvelli og hefst kl. 14:30. Mæting er að Gróttuvelli kl. 13:30.

Vek athygli á að allnokkrar stúlkur eru boðaðar í báða leiki en nokkuð er um forföll, auk þess sem að stúlkur í 5. flokki eru að leika á laugardag og sunnudag og geta ekki tekið þátt með okkur.

Loks vek ég athygli á að B-lið á leik á mánudag kl. 19 á Valsvelli. Allar nánari upplýsingar um það verða birtar um helgina.

Birgir Jónasson þjálfari.

Umfjöllun um leiki gegn Þrótti R. í Faxaflóa-/Reykjavíkurmóti

Sæl, öllsömul.

Ætla fara nokkrum orðum um kappleiki gærdagsins gegn Þrótti R í A- og B-liðum.

Stúlkurnar léku af fingrum fram og sýndu allar sínar bestu hliðar.

A-liðið lék einn sinn besta leik og tók Þrótt hreinlega í kennslustund. Fyrirfram mátti búast við hörkuleik þar sem halla hefði fremur átt á okkar stúlkur, sé tekið mið af úrslitum beggja liða í riðlinum. Önnur varð raunin. Þróttur komst varla fram yfir miðju fyrr en eftir ca 20 mínútna leik og fyrri hálfleikur var algjör einstefna. Mörkin urðu tvö í fyrri hálfleik, án þess að Þróttur næði að skora. Aðeins meira jafnræði var í síðari hálfleik en okkar stúlkur þó mun betri. Mörkin urðu einnig tvö í síðari hálfleik, án þess að Þróttur næði að skora. 4-0 sigur því staðreynd og var hann síst of stór. Mörkin gerðu Vaka 3 og Berglind 1.

B-liðið lék einnig afar vel, en þessu sinni léku þrjár stúlkur úr 5. flokki með liðinu, í fyrsta sinn á þessu þjálfunartímabili (Fanney, Védís og Þórdís). Okkar stúlkur léku með vind í bakið í fyrri hálfleik og voru mun sterkara liðið. Mörkin urðu tvö í fyrri hálfleik og var það sanngjörn staða (síst of stór). Þar sem bætti í vindinn þegar á kvöldið leið hefði fyrirfram mátt búast við afar erfiðum síðari hálfleik. Sú varð ekki raunin og var jafnræði með liðum þar sem Þróttur sótti aðeins meira en okkar stúlkur voru stórhættulegar fram á við. Eitt mark var gert í síðari hálfleik og það kom frá okkar stúlkum. 3-0 sigur því staðreynd og var hann sanngjarn. Mörkin gerðu Bjartey 1, Eva María 1 og Þórdís úr 5. flokki 1, en hún kom inn í hópinn á síðustu stundu vegna manneklu.  

Heilt yfir er ég afar ánægður með frammistöðu beggja liða. A-liðið lék framúrskarandi, einn sinn besta leik, og B-liðið lék einnig vel. A-liðið náði upp góðri pressu og frábæru spilaköflum. Breidd vallar nýttist vel og stúlkur voru stórhættulegar fram á við. Í raun kom ógn fram á við frá mjög mörgum leikmönnum. Veður, sem versnaði þegar leið á kvöldið. setti aðeins strik í reikninginn í leik B-liðsins og af þeim sökum var meira af tæknifeilum í þeim leik. Heilt yfir lék B-liðið þó vel, skapaði sér fullt af marktækifærum og náði að halda hreinu með seiglu. Þá lék B-liðið hreint út sagt frábæra vörn.  

Birgir Jónasson þjálfari.

Ný liðsskipan fyrir leiki gegn Þrótti R., 7. feb. 2019

Sæl, öllsömul.

Liðsskipan fyrir kappleiki gegn Þrótti R. á morgun, fimmtudag, er eftirfarandi:

A-lið:
Berglind (F)
Bjartey (M)
Embla
Freyja
Hera R.
Hildur
Hulda
Indíana
Mist
Sara
Silja
Vaka
Valdís Eva
Vera

B-lið:
Anna Magnþóra
Bjartey (Ú)
Embla
Eva María (M/Ú)
Fanney (5. fl.)
Fríða (F)
Hulda
Indíana (F)
Kara
Nanna
Perla Sól
Salome
Sara (M)
Valdís Anna
Védís (5. fl.)

Þá eru Guðrún og Ella (líklega) forfallaðar.

Leikið verður á Bessastaðavelli. Leikur A-liðs hefst kl. 17:30 og leikur B-liðs í framhaldi, um kl. 19.

Stúlkur í A-liði þurfa að mæta í vallarhúsið kl. 16:30 og stúlkur í B-liði  kl. 18, hvort í senn fullbúnar til leiks og með vatnsbrúsa meðferðis.

Vek athygli á að sumar stúlkur eru boðaðar í báða leiki, venju samkvæmt. Þá eru tvær stúlkur í 5. flokki boðaðar hjá B-liði að þessu sinni.

Birgir Jónasson þjálfari.

Liðsskipan fyrir leiki gegn Þrótti R.

Sæl, öllsömul.

Liðsskipan fyrir kappleiki helgarinnar eru eftirfarandi:

A-lið:
Berglind (F)
Bjartey (M)
Embla
Freyja
Guðrún (Ú/M)
Hera R.
Hildur
Hulda
Indíana
Mist
Sara
Silja
Vaka
Valdís Eva
Vera

B-lið:
Anna Magnþóra
Bjartey (Ú)
Ella
Embla
Eva María (M/Ú)
Fanney (5. fl.)
Fríða (F)
Guðrún (M)
Hulda
Indíana (F)
Kara
Nanna
Perla Sól
Salome
Valdís Anna
Védís (5. fl.)

Leikið er á sunnudag á Bessastaðavelli. Leikur A-liðs hefst kl. 12 og leikur B-liðs kl. 13:30.

Stúlkur í A-liði þurfa að mæta í vallarhúsið kl. 11 og stúlkur í B-liði 12:30, hvort í senn fullbúnar til leiks og með vatnsbrúsa meðferðis.

Vek athygli á að sumar stúlkur eru boðaðar í báða leiki, venju samkvæmt. Þá eru tvær stúlkur í 5. flokki boðaðar hjá B-liði að þessu sinni. 

Birgir Jónasson þjálfari.