Leikið í Faxaflóamóti á laugardag

Sæl, öllsömul!

Athygli er hér vakin á því að A-liðið á leik í Faxaflóamóti á laugardag, 9. mars nk. kl. 10, þar sem att verður kappi við Keflavík. Mun leikur þessi fara fram í Reykjaneshöll.

Nánari tilhögun þessa verða kunngerð hér inni á síðunni á morgun, fimmtudag.

Birgir og Guðbjörn þjálfarar.