Leikur í Lengjubikar á morgun, þriðjudag

Sælar, stúlkur!

Á morgun, þriðjudag, verður leikið í Lengjubikar KSÍ þegar att verður kappi við Fram (um er að ræða frestaðan leik). Leikið verður á Framvelli í Safamýri og hefjast leikar kl. 20.

Stúlkur þurfa að vera mættar á leikstað um kl. 18:45 og hafa allan búnað tiltækan. Leikið verður í varabúningum að þessu sinni og því þurfa stúlkur ekki að hafa meðferðis keppnisskyrtur eða stuttbuxur.

Allar stúlkur, sem skráðar eru í Álftanes og æft hafa að undanförnu, eru boðaðar. Bið stúlkur um að boða í forföll með eins góðum fyrirvara og unnt er, það auðveldar skipulagningu. 

Birgir Jónasson þjálfari.