Mismunandi sjónarhorn á knattspyrnu

Sælar, stúlkur!

Langaði að vekja athygli ykkar á mismunandi sjónarhorni manna á knattspyrnuleiki með eftirfarandi tveimur myndskeiðum úr einum og sama leiknum. Um ræðir sögufrægan leik og að mínu mati eina allra bestu frammistöðu annars liðsins sem sést hefur, fram til þessa.

Í fyrra sýnishorninu eru hápunktar leiksins en í hinu síðara er verið að horfa á ákveðna þætti í leik annars liðsins. Sjálfur finnst mér síðara myndskeiðið eiginlega betra sjónarhorn á gæðin. Það verður spennandi að heyra ykkar skoðanir á því.

https://www.youtube.com/watch?v=911ufp_8LdY.

https://www.youtube.com/watch?v=M7INnQGoBkE.

Birgir Jónasson þjálfari.