Dagskrá næstu viku, 13. til 19. júlí

Sælar, stúlkur!

 

Dagskrá næstu viku verður eftirfarandi en hún verður með nokkuð óhefðbundnu sniði þar sem ég mun vera fjarverandi hluta vikunnar og enginn leikur er í Íslandsmóti:

 

Mánudagur, kl.19:30, æfing (Bessastaðavöllur). Æfingu stjórnar Sigurður Brynjólfsson.

Þriðjudagur, kl. 18, æfing (Bessastaðavöllur). Æfingu stjórna leikmenn mfl. kvenna í sameiningu.

Miðvikudagur, kl. 17:30, „Knattspyrnusprell“ með yngri flokkum og grill (Bessastaðavöllur). Umsjón Guðbjörn Harðarson.

Fimmtudagur, kl. 18, æfing (Bessastaðavöllur). Æfingu stjórnar Sigurður Brynjólfsson.

Sunnudagur, kl. 17, æfing (Bessastaðavöllur). Æfingu stjórnar undirritaður.

 

Bið stúlkur að sýna ábyrgð og skynsemi þann tíma sem ég verð fjarverandi og leggi sitt af mörkum að æfingar gangi snurðulaust fyrir sig.

 

Birgir Jónasson þjálfari.